Frumtamninganámskeið á Selfossi
Róbert Petersen reiðkennari verður með frumtamningarnámskeið í reiðhöllinni á Selfossi í byrjun nóvember ef nægjanleg þátttaka fæst.
“Hver þátttakandi kemur með sitt trippi og farið verður í gegnum helstu þætti frumtamningar, s.s.:
Fjórir verða í hverjum hópi en hámarksfjöldi á námskeiðið er 12 – 16 þátttakendur. Bóklegir tímar verða sameiginlegir fyrir allan hópinn. Verkleg kennsla verður í Reiðhöllinni þar sem unnið verður með trippin (ca. 15 mín. á hvert trippi). Einnig eiga nemendur að fylgjast með öðrum og læra þannig á mismunandi hestgerðir og mismunandi aðferðir við for- og frumtamningu.
Þeir sem áhuga hafa á að taka þátt í þessu námskeiði hafi samband við Svein í síma 894-7146,” segir á heimasíðu hestamannafélagsins Sleipnis.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH