Frumtamninganámskeið í Fáki
Hestamannafélagið Fákur og Róbert Petersen reiðkennari verða með frumtamningarnámskeið sem hefst í Reiðhöllinni í Víðidal í lok ágúst. Hver þátttakandi kemur með sitt trippi og farið verður í gegnum helstu þætti frumtamningar, s.s.:
Atferli hestsins
Leiðtogahlutverk
Fortamning á trippi
Undirbúningur fyrir frumtamning
Frumtamning
Bóklegir tímar: 2
Verklegir tímar: 12
Tímar: Mánudagskvöld, þriðjudagskvöld og fimmtudagskvöld í fjórar vikur.
Verð: 30.000.-
Fjórir verða í hverjum hópi en hámarksfjöldi á námskeiðið er 12 – 16 þátttakendur. Bóklegir tímar verða sameiginlegir fyrir allan hópinn. Verkleg kennsla verður í Reiðhöllinni þar sem unnið verður með trippin (ca. 15 mín. á hvert trippi). Einnig eiga nemendur að fylgjast með öðrum og læra þannig á mismunandi hestgerðir og mismunandi aðferðir við for- og frumtamningu.
Skráning á netfangið [email protected] – lokaskráningarfrestur er miðvikudaginn 24. ágúst.
Fáksfélagar ganga fyrir en námskeiðið er öllum opið. Fyrstur kemur fyrstur fær!
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH