Frumtamninganámskeið í október

  • 16. september 2011
  • Fréttir
Frumtamninganámskeið í október

Hið geysivinsæla frumtamninganámskeið hjá Róberti Petersen mun einnig verða haldið í október að er fram kemur í fréttatilkynningu frá Fáki.

 
„Námskeiðið hefst með bóklegum tíma mánudaginn 26. september og svo verður fyrsti verklegi tíminn 27. september.
Hver þátttakandi kemur með sitt trippi og farið verður í gegnum helstu þætti frumtamningar, s.s.:
–          Atferli hestsins
–          Leiðtogahlutverk
–          Fortamning á trippi
–          Undirbúningur fyrir frumtamningu
–          Frumtamning
Bóklegir tímar:  2
Verklegir tímar:  12
Tímar: Mánudagskvöld, þriðjudagskvöld og fimmtudagskvöld í fjórar vikur.
Verð: 30.000.-
 
Fjórir verða í hverjum hópi en hámarksfjöldi á námskeiðið er 12 – 16 þátttakendur. Bóklegir tímar verða sameiginlegir fyrir allan hópinn. Verkleg kennsla verður í Reiðhöllinni þar sem unnið verður með trippin (ca. 15 mín. á hvert trippi).  Einnig eiga nemendur að fylgjast með öðrum og læra þannig á mismunandi hestgerðir og mismunandi aðferðir við for- og frumtamningu.
 
Skráning á netfangið [email protected]   – lokaskráningarfrestur er fimmtudagskvöldið 22. sept. Fáksfélagar ganga fyrir en námskeiðið er öllum opið.“

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link