Frumtamninganámskeið í Söðulsholti

  • 7. október 2011
  • Fréttir
Frumtamninganámskeið í Söðulsholti

Tveggja helga frumtamninganámskeið verður haldið í Söðulsholti dagana 29.-30. október og 12.-13. nóvember. Kennari námskeiðsins er Guðmundur M. Skúlason Tamningamaður og Þjálfari FT.

„Haustið er góður tími til að frumtemja gæðingsefnin. Á námskeiðinu kemur hver nemandi með tvö trippi og vinnur með báðar helgarnar. Allir þátttakendur fá heimaverkefni til að vinna með á milli helganna. Það sem verður meðal annars farið yfir á námskeiðinu er: Atferli hestsins (Hvernig hugsar hesturinn?) Leiðtogahlutverk (hvað getur maður fengið hestinn til að gera?) Undirbúningur fyrir frumtamningu (Við byrjum ekki að taka stúdentspróf í 1. Bekk!) Frumtamning er grunnur að góðri tamningu á forsendum hestsins.

Tveir bóklegir tímar (sameiginlegir fyrir alla þátttakendur, Átta verklegir tímar á hvern nemanda. Samantekt í lok hvers dags þar sem farið er yfir verkefni dagsins og spurningum svarað. Miðað er við að allir þátttakendur horfi á tímana hjá hinum og sjái mismunandi hestgerðir og hvernig þær bregðast við á mismunandi hátt. Þá geta allir fengið mikið út úr námskeiðinu. Námskeiðið kostar 19.000 kr á mann með hesthúsplássi frá föstudagskvöldi fram á sunnudag.

Skráning í síma:7702025 (Guðmundur) Eða á netfangið: [email protected],“ segir á heimasíðu Söðulsholts.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link