Full ástæða til varúðar –
Á vef Matvælastofnunar má lesa niðurstöður úr mælingum á flúori í ösku frá Eyjafjallajökli. Samkvæmt upplýsingum frá Jarðvísindastofnun, er flúormagn ekki tiltakanlega mikið, eða um þriðjungur þess sem yfirleitt er í ösku frá Heklu en svipuð og í Heimaeyjargosinu 1973. Samt sem áður er full ástæða til varúðar og að halda búpeningi frá öskumengaðri beit og einkum bræðsluvatni, svo sem pollum á túnum.
Nánar um sýnatökuna sem framkvæmd var í gær, 22.mars:
Þrjú sýni voru mæld:
1. Sýni frá eldstöðinni – fíngert glerjað gjall
2. Sýni í snjó undir Eyjafjöllum VP323 á 63.36.36,4-19.26.17,3- glerjuð aska 0,2-1mm
3. Sama stað og No 2
Sýni 1 var skolað á rannsóknarstofu og flúor og sýrustig mælt í skolvatni.
Flúor og sýrustig var mælt í bræðsluvatni af sýnum 2 og 3.
Niðurstöður
Leysanlegur flúor á yfirborði ösku: mg flúor pr kg af ösku.
• Sýni 1(pH 6,45) Flúor 92 mg/kg
• Sýni 2 (pH 5.66) Flúor 112 mg/kg
• Sýni 3 (pH 5,55) Flúor 108 mg/kg
Skolvatnið er lítið eitt súrt – bendir til lítilræðis af eldfjallagasi (Saltsýru-Brennisteinssýru) á öskukornunum.
OBS – Sýnin eru gróf aska – gera verður ráð fyrir að flúorgildi séu hærri fjær eldfjallinu þar sem askan er fíngerðari og yfirborð hennar stærra. Hugsanlegt er að gildin væru allt að 400-500 mg/kg á Mið-Suðurlandi.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH