Fundað um fyrirkomulag kynbótasýninga

  • 8. janúar 2013
  • Fréttir
Eiðfaxi Image
Sigbjörn Björnsson á Lundum II er formaður nefndar sem skipuð var á aðalfundi Félags hrossabænda í haust.

Á aðalfundi Félags hrossabænda síðastliðið haust var skipuð nefnd til að fara yfir og endurskoða framkvæmd og umgjörð kynbótasýninga. Tilefnið er skýrsla Sigríðar Björnsdóttur, dýralæknis hrossasjúkdóma, um áverka keppnis- og sýningahrossa á Lands- og Íslandsmótum. Þar kemur fram að helftin af hrossunum er með áverka; ágrip eða munnsæri. Markmiðið er að finna leiðir til að minnka þessa áverka í kynbótasýningum með því að greina orsakir þeirra.

Sigbjörn Björnsson á Lundum II, formaður nefndarinnar, segir að nokkrum aðilum í félaginu hafi verið sent bréf þar sem óskað er eftir þátttöku þeirra í nefndinni. Þar á meðal eru Svanhildur Hall, Sigurður Sigurðarson og Bjarni Jónasson. Fyrsti fundur nefndarinnar verður 17. janúar. Sigbjörn  segir að gengið verði til verks með hreint borð, engar fyrirfram ákveðnar hugmyndir séu í farvatninu. Áverkaskýrslan sé hvatinn að skipun nefndarinnar, en án efa verði allt undir í umræðunni.

„Ég held að það sé gott fyrir okkur að ræða þessa hluti oftar en ekki. Persónulega held ég þó að örar breytingar séu ekki til bóta, án þess að ég ætli að leggja nefndinni línur fyrirfram. En við verðum að taka tillit til þess að við erum í alþjóðlegu samstarfi og kollegar okkar á meginlandinu eru mun íhaldssamari en við hvað varðar hefðir og reglur. Stökkbreytingar yrðu ekki vel séðar ef ég þekki þá rétt. Ég held þó að allir séu sammála um að það sé ekki hægt að una við að hrossin séu meidd og sár eftir sýningarnar. Á því verðum við að finna lausn,“ segir Sigbjörn.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link