Fundarferð Fagráðs hefst fyrir norðan.
Almennir fundir í fundarröð Fagráðs um málefni hestamanna hefjast í næstu viku. Með fulltrúum Fagráðs þeim Sveini Steinarssyni formanni Félags hrossabænda og Fagráðs og Gunnfríði Elínu Hreiðarsdóttur ritara Fagráðs verður Haraldur Þórarinsson formaður Landsambands Hestamanna og munu þau verða frummælendur fundarins.
Fundirnir verða haldnir á eftirtöldum stöðum og hefjast kl 20:30
- Mánudaginn 17.feb Hlíðarbær, Eyjarfirði
- Þriðjudaginn 18. Feb Tjarnarbær, Sauðárkróki
- Miðvikudaginn 19.feb Salnum að Húnabraut 13 á Blönduósi .
Næstu fundir í fundarröðini verða kynntir til sögunar fljótlega.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH