Fyrirlestrar á Fljótsdalshéraði
Frjósemi hrossa er til umræðu á fyrsta fyrirlestri Hraust og Fljótsdalsgrundar.
Hrossaræktarsamtök Austurlands og Gistiheimilið Fljótsdalsgrund hafa tekið höndum saman og ætla að bjóða upp á fyrirlestraröð með góðum fyrirlesurum um málefni tengdum hrossum og hrossarækt.
Fyrsti fyrirlesturinn verður í Fljótsdalsgrund í Fljótsdal 29. febrúar og hefst kl 20:30. Þar mun Freydís Dana Sigurðardóttir, dýralæknir, fjalla um frjósemi hrossa og svara fyrirspurnum sem vakna. Agangseyrir kr. 1000,- fyrir félagsmenn Hr.Aust.og 1500,- fyrir utanfélagsmenn.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson