Fyrirlestur og sýnikennsla með Michel Becker
Philippe Karl
Endurmenntun LbHÍ býður uppá fyrirlestur og sýnikennslu með Michel Becker, reiðkennara (IPZV-Trainer B) sem hefur unnið með íslenska hesta í um 25 ár. Hann hefur þjálfað með Bruno Podlech í mörg ár og á seinni árum sameinar hann klassískri franskri reiðmennsku eftir hugmyndafræði Philippe Karl með sérstakar þarfir íslenska hestsins. Þar að auki hefur hann sérhæft sig í jafnvægisjárningum fyrir íslenska hesta.
Megin inngangur fyrirlestursins mun vera um fimiþjálfun eftir hugmyndafræði Philippe Karl (www.philippe-karl.com); til að bæta jafnvægi, mýkt og léttleika hjá íslenskum hestum. Að loknum fyrirlestursins mun hann halda sýnikennslu og taka tvo hesta með mismunandi vandamál og sýna æfingar og vinnubrögð til að leiðrétta þá.
Fyrirlesturinn fer fram í Ársal, Ásgarði á Hvanneyri kl. 12:30 og sýnikennsla tekin í framhaldi í Hestamiðstöð LbhÍ á Miðfossum, laugardeginum 26 febrúar. Áætluð lok um kl 14:30.
Æskilegt er að skrá sig á [email protected] en einnig má mæta beint í Ásgarð.
Verð: Aðeins 1000 kr sem greiðast með seðlum á staðnum.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH