Fyrst og fremst áhugamál
Baldur Þórarinsson, betur þekktur sem Bakka-Baldur, birtist íslenskum áhorfendum á sjónvarpsskjánum er samnefnd kvikmynd var sýnd í Ríkissjónvarpinu á nýársdag. Baldur er þar hljóðlátur, hæglátur og lítillátur maður. Þannig hefur hrossarækt hans einnig verið í gegn um tíðina en hún hefur engu að síður skilað af sér afbragðs reiðhestum og keppnishestum.
Baldur lítur á hrossarækt sína fyrst og fremst sem áhugamál og veltir því fyrir sér stefnu íslenskrar ræktunar út frá sjónarhóli áhugahestamannsins:
„Ég hugsa til þess þegar ég sé, að mínu áliti, hest með draumavilja, hest sem vill allt fyrir mann gera, er jákvæður og fús. Hann fær kannski 8 í einkunn fyrir vilja og umsögnina „reiðvilji.” Hins vegar myndi ég hugsa mig tvisvar um áður en ég settist á bak hesti með viljaeinkunn upp á 9 – 9,5. Þetta eru nú kannski öfgar, en ég nefni þetta til að benda á að stór hluti iðkenda hestamennsku er ekki keppnis- og sýningarfólk, heldur áhugamenn.”
Baldur er í ræktendaspjalli í 2. tölublaði Eiðfaxa sem nú er komið út.
Eiðfaxi hefur jafnframt tekið á sölu hina hugljúfu heimildarmynd um Bakka-Baldur eftir Þorfinn Ómarsson, hún fæst í vefverslun tímaritsins og á skrifstofu þess. Stikla úr myndinni er hér meðfylgjandi.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH