Fyrsta lyfjapróf Meistaradeildar
Þorvaldur Árni var annar tveggja knapa sem voru fyrst til að vera lyfjaprófuð í keppni Meistaradeildarinnar. Hér situr hann Stjörnu frá Stóra-Hofi.
Ekki hefur verið mikil umræða um lyfjanotkun í hestaíþróttum hér á landi. Á stærri mótum hestamanna hafa undanfarin ár verið tekin nokkur próf ýmist af knöpum eða hestum.
Á dögunum var í fyrsta sinn tekið lyfjapróf í Meistaradeildinni í hestaíþróttum þegar tveir knapar voru settir í próf. Það voru þau Þorvaldur Árni Þorvaldsson og Olil Amble.
Í samtali vildi Örvar Ólafsson, starfsmaður lyfjaeftirlits ÍSÍ, ekki segja hvers vegna ákveðið hefði verið að taka lyfjapróf í deildinni á þessum tímapunkti, en margir töldu deildina ekki falla undir keppnisreglur ÍSÍ og því ekki í hópi þeirra móta þar sem lyfjapróf væru framkvæmd.
Greinina í heild sinni má nálgast í 3. tölublaði Eiðfaxa. Hægt er að panta áskrift í síma 511 6622 eða í gegnum tölvupóstfangið [email protected].
Styttu haustið með EiðfaxaTV