Fyrsta mót Æsku Suðurlands
Fyrsta mót Æsku Suðurlands verður haldið í reiðhöllinni á Flúðum sunnudaginn 3. mars og hefst kl 11.00 og er mótið í umsjón Smára, Loga og Trausta.
Keppt verður í eftirfarandi greinum:
Börn – þrígangur og smali
Unglingar – fjórgangur V2 og smali
Ungmenni – fjórgangur V1 og smali
Boðið er upp á æfingartíma í smalanum á föstudaginn 1. mars frá kl 17.00 og einnig á sunnudagsmorgun frá kl 8.00 – 10.45 í reiðhöllinni á Flúðum.
Skráning fyrir þrígang og fjórgang verður í sportfeng. Þrígangur er skráð sem T3. Skráningar í smalanum verður á [email protected] og skráningargjald lagt inn á 325-26-39003 kt 431088-1509 og þarf að senda kvittun sem staðfestingu á sama netfang. Opnum fyrir skráningar á mánudaginn 25/2 og skráningarfrest er til fimmtudaginn 28/2 kl 20.00.
Með von um góðar móttökur.
Fyrir hönd æskulýðsnefð Smára,
Elin Moqvist
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH