Fyrsta þemað í ár er „Eldur og Ís“.

  • 9. mars 2022
  • Fréttir
Ljósmyndasamkeppni FEIF og IPZV

FEIF og IPZV halda á hverju ári fjórar ljósmyndasamkeppnir tileinkaðar hverri árstíð. Fyrsta þemað í ár er „Eldur og Ís“.

Myndirnar verður að senda í landscape og í góðum gæðum. Leyfilegt er að senda inn allt að 3 myndir.

Mikilvægt er að hafa í huga:

Myndirnar verða að innihalda íslenska hestinn
Myndin verður að vera tekin af þér eða fjölskyldu eða vinum. Myndir frá atvinnuljósmyndurum eru ekki samþykktar.
Skylda er að vera með hjálm ef knapi er á baki á myndinni.
Vinsamlegast setjið inn heimilisfang svo hægt sé að senda sigurvegara keppninnar vinninginn.
Alþjóðleg dómnefnd fer síðan yfir myndirnar og verða 10 bestu myndirnar valdar til kosningar á netinu.

Veglegir vinningar í boði.

Sendið myndirnar á [email protected]

 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link