Fyrsti þátturinn um Equsana-deildina!

  • 14. febrúar 2020
  • Fréttir
Þættirnir eru samstarfsverkefni Eiðfaxa og Stöð 2 Sport

Stöð 2 Sport sýndi í fyrradg fyrsta þátt vetrarins um Equsana-deildina, áhugamannadeild Spretts í hestaíþróttum. Fjallað var um fyrstu keppni vetrarins af alls fjórum en í henni bar Saga Steinþórsdóttir á Móa frá Álfhólum sigur úr býtum með heildareinkunina 7,17.

Það er kjörið tækifæri í veðrinu sem nú gengur yfir landið að horfa á þáttinn í heild sinni en allan þáttinn má sjá nú á Vísi en næstu þrír þættir verða sýndir á Stöð 2 Sport, annan hvern miðvikudag. Næsti þáttur er á dagskrá 26. febrúar.

Smelltu hér till að horfa á þáttinn.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar