Fyrstu stóðhestarnir munstraðir á Landsmót

  • 5. maí 2011
  • Fréttir
Eiðfaxi Image
Þeyr frá Prestsbæ með 8,46

Kynbótasýningar eru hafnar og fyrstu tölur lofa góðu. Á héraðssýningu á Sauðárkróki í lok apríl voru sýnd 23 hross og ellefu fengu fyrstu einkunn. Fjórir stóðhestar náðu einkunn inn á Landsmót. Með hæstu aðaleinunn er stóðhesturinn Þeyr frá Prestsbæ 7 vetra með 8,46, hækkar sig um fjórar kommur frá fyrra. Knapi Þórarinn Eymundsson. Með aðra hæstu einkunn er Blær frá Miðsitju 6 vetra, 8,44, hækkar sig um 19 kommur frá í fyrra. Knapi Tryggvi Björnsson. Þriðji hæstur er Gáski frá Vindási 8 vetra með 8,38, hækkar sig um níu kommur frá því 29009. Knapi Eyjólfur Þorsteinsson. Fjórði til að ná inn á Landsmót er Bjartur frá Sæfelli 6 vetra með 8,26 Hækkar sig um ellefu kommur frá í fyrra. Knapi Eyjólfur Þorsteinsson. Kynbótasýning var fyrirhuguð í Sörla nú í byrjun mánaðarins, en henni var aflýst vegna lítillar þátttöku.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link