Fyrstu verðlaun fyrir afkvæmi á Landsmóti

  • 14. júní 2022
  • Fréttir
Nýjir hestar að bætast í hópinn sem líklegir til fyrstu verðlauna fyrir afkvæmi á Landsmóti

Nú eru síðustu vorsýningar í gangi en sýnt er á fjórum stöðum í vikunni, Hafnarfirði, Hellu, Selfossi og á Hólum. Þetta eru síðustu sýningarnar fyrir Landsmót þannig að um helgina verður komið í ljós hvaða kynbótahross hafa nælt sér í miða á mótið.

Í mars birti Eiðfaxi lista yfir þá hesta sem líklegir væru til að koma fram á næsta Landsmóti með afkvæmahópum. Til að stóðhestur hljóti fyrstu verðlaun fyrir afkvæmi verður hann að uppfylla tvö skilyrði; 118 stig í kynbótamati og 15 dæmd afkvæmi. Í framhaldi af því að hross hljóta nú tvær aðaleinkunnir, með og án skeiðs, eru stóðhestum sem hljóta 118 stig eða meira í aðaleinkunn kynbótamats án skeiðs nú líka veitt afkvæmaverðlaun.

Hringur frá Gunnarsstöðum I (120 stig), Kolskeggur frá Kjarnholtum I (120 stig), Hreyfill frá Vorsabæ II (116 stig) og Auður frá Lundum II (110 stig) hafa nú þegar náð lágmörkum til fyrstu verðlaun fyrir afkvæmi. Þeir verða svo verðlaunaðir á Landsmótinu, ef þeir standast enn kröfur til afkvæmaverðlauna en nýtt kynbótamat verður reiknað fyrir mótið.

Aðrir hestar sem voru taldir upp sem líklegir til að hljóta fyrstu verðlaun fyrir afkvæmi voru þeir Forkur frá Breiðabólstað (127 stig), Organisti frá Horni I (126), Knár frá Ytra-Vallholti (123 stig), Dagur frá Hjarðartúni (121 stig), Sólbjartur frá Flekkudal (120 stig) og Lexus frá Vatnsleysu (120 stig) en öllum þessum hestum vantaði nokkur afkvæmi upp á til að hljóta verðlaunin.

Eins og staðan er núna þá hefur Forkur bætt við sig 5 afkvæmum og á nú 11 sýnd afkvæmi. Organisti er komin með 13 sýnd afkvæmi. Knár frá Ytra-Vallholti hefur náð lágmörkunum með 15 afkvæmi sýnd en hann var með 12 fyrr á árinu. Sólbjartur og Lexus hafa bætt við sig einu afkvæmi og eru nú með 10 og 8 afkvæmi. Ekkert nýtt hefur verið sýnt undan Degi frá Hjarðartúni og er hann því enn með 6 afkvæmi.

Það voru tveir hestar sem ekki voru á listanum þeir Ljósvaki frá Valstrýtu og Álfaklettur frá Syðri-Gegnishólum. Í mars átti Ljósvaki tvö sýnd afkvæmi og Álfaklettur fjögur en búið er að sýna átta ný afkvæmi undan þeim og eru Ljósvaki því kominn með 10 afkvæmi og Álfaklettur 11 afkvæmi.

Álfaklettur er með 131 stig í kynbótamati og eru hæstur af þessum hestum sem eru taldir upp hér fyrir ofan. Í samtali við Olil Amble ræktanda og eiganda hestsins sagði hún að þau hefðu ekkert verið búin að pæla í þessum möguleika. “Þetta var ekki stefnan en hins vegar sáum við þetta bara allt í einu gerast að sjálfu sér. Fyrir einhverjum árum síðan hefðum við líklega verið búin að gera okkur grein fyrir stöðunni fyrr. Hins vegar þegar þetta fór að koma í ljós höfum við reynt að fylgja þessu eftir. Hann fékk alls ekki sama tækifærið og sumir af bræðrum hans hvað varðar fjölda af hryssum þannig að afkvæmin eru að skila sér mjög vel miðað við magn. Fimm og sex vetra hrossin undan honum urðu til þegar Álfaklettur er tveggja og þriggja vetra. Einungis fjögurra vetra hrossin urðu til eftir að hann fór í dóm. Hann sló svo sem ekkert í gegn þó svo að aðaleinkunnin hans hafi verið 8,32,” segir Olil en ef þessi hross sem vitað er um að á að sýna í vikunni skila sér til dóms þá ætti skilyrtur fjöldi afkvæma að nást.

Í samtali við ræktanda og annan eiganda Ljósvaka, Guðjón Árnason, vonast hann til að þessi hross sem hann veit að eigi að sýna í vikunni skili sér til dóms. “Við erum að reyna ná honum í 15 afkvæmi og ég er að vona að það gangi. Fyrir tímabilið var aðeins búið að sýna undan honum tvö hross þannig við erum ánægðir með útkomuna. Ef allt skilar sér til dóms af því sem ég veit að á að mæta með þá næst þetta. Það getur samt alltaf einhver dottið úr lestinni. Maður veit aldrei hvað gerist.”

Ljósvaki frá Valstrýtu á miða á Landsmót í b flokknum og gæti einnig verið að fara taka á móti fyrstu verðlaunum fyrir afkvæmi. Mynd: Nicki Pfau

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link