Gæðastýring í hrossarækt

  • 17. september 2014
  • Fréttir
Í hverju felst gæðastýringin ?

Gæðastýring í hrossarækt miðar að því að votta framleiðslu búanna sem vistvæna gæðaframleiðslu og tekur á þáttum sem lúta að áreiðanleika ætternis og uppruna hrossanna, velferð þeirra og verndun landgæða. Fyrsta stig vottunarinnar lýtur að ætt og uppruna og byggist á skýrsluhaldi, örmerkingu og DNA – greiningu, annað stig er vottun á landnýtingu og lokastigið er góð fóðrun og umhirða. 

Gæða-Skýrsluhald: Tilgangurinn með skýrsluhaldi í hrossarækt er fyrst og fremst að aðstoða hrossaræktendur við að halda á tryggan hátt utan um allar mikilvægar upplýsingar um einstök hross í þeirra eigu og mynda á þann hátt gagnagrunn sem unnt er að vinna úr frekari upplýsingar sem síðan nýtast hverjum og einum við ræktunarstarfið. 

Gæða-Landnýting: Lýtur að notkun lands með tilliti til beitar. Þar er leiðarljósið að nýta landið en níða ei og vottunin gengur út á að beitin rýri ekki landgæði né hamli eðlilegri framþróun. Þessi vottun er unnin undir faglegri umsjón Landgræðslu ríkisins. 

Gæða-Umhirða: Þessi hluti vottunarinnar um vistvæna gæðaframleiðslu tekur til, fóðrunar, umhirðu og almenns heilbrigðis hrossanna. Eftirlitsaðili er opinbert búfjáreftirlit. 

Gæðastýring í hrossarækt – Handbók 2010 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link