Gæðingafimi LH sýningargrein á Íslandsmóti barna og unglinga
Frá verðlaunaafhendingu í gæðingafimi á Íslandsmótinu á Hólum Ljósmynd/Gísli Guðjónsson
Gæðingafimi LH 2. stig verður sýningargrein á Íslandsmóti barna og unglinga á félagssvæði Sörla Hafnarfirði.
Keppt verður í reiðhöllinni en dagskrá verður gefin út þegar skráningu er lokið.
Hugmyndin að þessari keppnisgrein er að sýna vel þjálfaðan gæðing á listrænan hátt, þar sem öll þjálfunarstigin eru sýnd. Knapi fléttar saman gangtegundum og æfingum og sýnir í einni heild jafnvægi, þjálni, kraft og fimi hestsins.
Ekki verður hægt að krýna Íslandsmeistara í greininni þar sem hún er sýningargrein en við hvetjum sem flesta til að taka þátt til þess að fá sem mesta reynslu á greinina.
Opið er fyrir skráningu og skráning er opin til hádegis mánudaginn 12. júlí.
Hér er að finna allar upplýsingar og reglur um gæðingafimi LH https://www.lhhestar.is/is/keppni/gaedingafimi-lh
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH