Gæðingaíþróttir – Gæðingafimi

  • 15. febrúar 2011
  • Fréttir
Gæðingafimi ellefu ár í Meistaradeild í hestaíþróttum

Að gefnu tilefni skulu hér leiðréttar missagnir í fréttum á www.hestabladid.is, 25 janúar og 9. febrúar, þar sem fjallað er um Gæðingafimi og Meistaradeild í hestaíþróttum. Þar er sagt að Eyjólfur Ísólfsson hafi hannað Gæðingafimina og fyrst hafi verið keppt í henni á FM1993. Hið rétta er að sú keppni hét ekki Gæðingafimi, heldur Gæðingaíþróttir. Höfundur Gæðingafiminnar er hins vegar Örn Karlsson, sem samdi hana árið 2000. Keppt hefur verið í Gæðingafimi í Meistaradeild í hestaíþróttum síðan og hefur hún tekið nokkrum breytingum. Einnig skal leiðrétt að Meistardeild í hestaíþróttum, sem að stærstum hluta fer fram í Ölfushöll, heitir ekki Meistaradeild Suðurlands í hestaíþróttum, eins og sagt er á www.hestabladid.is, heldur aðeins Meistaradeild í hestaíþróttum. Hlutaðeigandi eru beðnir afsökunar á þessum mistökum.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link