Gæðingakeppni á Íslandsmóti barna og unglinga

  • 29. júní 2023
  • Tilkynning
Íslandsmót barna og unglinga 2023 verður haldið dagana 12.-16. júlí á félagssvæði Geysis, Rangárbökkum

Sú ákvörðun var tekin að bjóða upp á gæðingakeppni á Íslandsmóti barna og unglinga. Ástæðan var að gefa gæðingakeppninni hærra undir höfði þegar ekki eru Landsmót en einnig að geta boðið börnum og unglingum upp á valkost því greinin hentar sumum hestum betur og ekki síður knöpum.

„Við viljum sjá nýliðun í hestamennsku og sjáum við að gæðingakeppnin hentar oft betur til þess en þær greinar sem boðið er upp á á Íslandsmótum. Við viljum bjóða alla velkomna á Íslandsmót og hlökkum til að sjá ykkur sem flest á Rangárbökkum dagana 12.-16. júlí,“ segir í tilkynningu frá mótshöldurum

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link