Gæðingakeppni Léttis – úrslit

  • 2. júní 2013
  • Fréttir
Gæðingakeppni Léttis - úrslit

Frábærri gæðingakeppni er lokið á Hlíðarholtsvelli á Akureyri. Keppnin fór fram í fallegu en örlítið köldu veðri.

Mótið gekk vel og voru úrslitin æsispennandi þar sem mjótt var á munum í efstu sætum.

Sólfaxi frá Sámsstöðum og Höskuldur Jónsson sigruðu A-flokkinn en fast á hæla þeirra voru þau Binný frá Björgum og Viðar Bragason.

Í B-flokki sigraði Ás frá Skriðulandi og var það álit manna að þetta hafi verið ein sterkustu B flokks úrslit í langan tíma.

Björgvin Helgason bar sigur úr býtum í ungmennaflokki á glæsihryssunni Perlu frá Björgum.

Sylvía Sól Guðmundsdóttir sigraði unglingaflokkinn á Skorra frá Skriðulandi og hlut einnig Álfsbikarinn sem gefinn er af Guðrúnu Thoroddsen og Páli Alfreðssyni og fer til glæilegasta parsins í unglingaflokki og er það valið af dómurum mótsins.

Egill Már Þórsson fékk Djáknabikarinn en hann er veittur því barni eða unglingi sem efstur er i forkeppni. Bikarinn er gefinn af Magnúsi Árnasyni og sonum hans í minningu um Djákna á Dalvík sem þeir kepptu allir á. Egill Már hlaut 8,47 í forkeppninni.

Myndir munu koma inná facebook síðu Léttis á næstu dögum.“ segir í tilkynningu frá Létti. 

Hér fyrir neðan eru allar einkunnir mótsins

Úrslit

A flokkur úrslit

B flokkur úrslit

Ungmennaflokkur úrslit

Unglingaflokkur úrslit

Barnaflokkur úrslit

A flokkur forkeppni

B flokkur forkeppni

Ungmennaflokkur forkeppni

Unglingaflokkur forkeppni

Barnaflokkur forkeppni

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link