Gæðingamót Fáks og Spretts

  • 18. maí 2023
  • Tilkynning
Skráningu lýkur mánudaginn 22. maí á miðnætti

Opna gæðingamót Fáks og Spretts fer fram dagana 26. og 28 maí 2023 á félagssvæði Fáks. Forkeppni verður á föstudeginum og úrslit verða riðin á sunnudeginum 28.maí vegna fyrirhugaðrar miðbæjarreið í miðbæ Reykjavíkur og viljum við ekki að það skarist á við mótið

 

Skráning hefst 18. maí og lýkur mánudaginn 22. maí á miðnætti. Skráning fer fram á Sportfeng, www.sportfengur.com.

 

Athugið: Skráning fer ekki í gegn fyrr en skráningargjald hefur verið greitt

 

ATHUGIÐ: Ef keppendur óska eftir að skrá eftir að skráningarfresti lýkur er greitt tvöfalt skráningargjald. Ekki er hægt að bæta við skráningum eftir að ráslistar hafa verið birtir.

 

Boðið verður upp á eftirfarandi flokka:

 

A-flokk gæðinga

B-flokk gæðinga

A-flokk gæðinga áhugamenn

B- flokk gæðinga áhugamenn

A-flokk ungmenna

B- flokk ungmenna

Unglingaflokkur

Barnaflokkur

Gæðingatölt – Áhugamenn

Tölt T1

Gæðingaskeið PP2

Flugskeið 100m P2

 

Mótanefnd áskilur sér rétt til að sameina flokka eða fella niður sé ekki næg skráning.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar