Gæðingamót Fáks: Úrslit í skeiðkeppni og B-úrslit í tölti

  • 28. maí 2011
  • Fréttir
Gæðingamót Fáks: Úrslit í skeiðkeppni og B-úrslit í tölti

B-úrslit í töltkeppni Gæðingamóts Fáks var að ljúka rétt í þessu í hellidembu í Víðidal. Þar tryggðu Sigurbjörn Viktorsson og Emilía frá Hólshúsum sér sæti í A-úrslitum sem fara fram í kvöld

Úrslit urðu eftirfarandi.
6. Sigurbjörn Viktorsson á Emilíu frá Hólshúsum
- 7,39
7. Birgitta Dröfn á Veru frá Laugabökkum – 7,28
8. Arna Ýr Guðnadóttir á Þrótti frá Fróni – 7,22
9-10. Lena Zielinski á Njálu frá Velli II
- 7,00
9-10. Kári Steinsson á Maríu frá Feti
- 7,00
11. Ásmundur Ernir Snorrason á Reyr frá Melabergi – 6,83


 

Þá fór fram keppni í skeiði fyrr í dag og urðu úrslit eftirfarandi:

Í 150 m sigraði Teitur Árnason á Veigar frá Varmalæk, tíminn var 15,17, Árni Björn Pálsson á Korka frá Steinnesi á 15,22 og síðan Valdimar Bergstað á 15, 42, Elvar Einarsson á Hrappi frá Sauðárkróki á 15, 45 og síðan en ekki síst Ragnar Hinriksson á Æfingu frá Lækjartúni á 16,33.

Niðurstöður eftir 250 m skeið eru Elvar Einarsson á Kóngi frá Lækjarmóti á 22,79, Sigurbjörn Bárðarson á Flosa frá Keldudal á 23,44, Valdimar Bergstað á Prins frá Efri-Rauðalæk á 23,82, Sigurður Vignir Matthíasson á Birtingi frá Selá á 23,95 og Ævar Örn Guðjónsson á Gjafari frá Þingeyrum á 23, 96.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link