Gæðingamót Jökuls verður 27. – 30. júlí

  • 5. júní 2023
  • Tilkynning
Mótið er opið öllum

Gæðingamót Jökuls verður haldið dagana 27. – 30.júlí næstkomandi en mótið er opið.

Mótið verður með hefðbundnu sniði og þeir flokkar sem eru í boði eru eftirfarandi:

  • A- flokkur
  • A-flokkur áhugamanna
  • A- flokkur ungmenni
  • B-flokkur
  • B- flokkur áhugamanna
  • B- flokkur ungmenna
  • Unglingaflokkur
  • Barnaflokkur
  • Tölt T3 – 18 ára og eldri
  • Tölt T3 – 17 ára og yngri, tölt
  • T7 – börn
  • T7 – fullorðna
  • 100m skeið

Skráningargjald: í eldri flokka og skeið er 7.000 kr og í yngri flokka 5.000 kr.

„Takið helgina frá, fjölmennum á Flúðir á þetta skemmtilega mót,“ segir í tilkynningu frá félaginu. Nánari upplýsingar um mótið má fá með að senda póst á [email protected]

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link