Gæðingar og geimflaugasmíð – Pistill eftir Þórdísi Erlu Gunnarsdóttur

  • 2. apríl 2020
  • Fréttir

Mynd: Þórdís Erla Gunnarsdóttir

Það er alltaf gaman að lesa skrif eftir pennafært fólk og Þórdís Erla er svo sannarlega ein þeirra. Hér skrifar hún vangaveltur sínar um breytingar á kynbótakerfi og gagnrýnir, í eiginlegri merkingu þess orðs, skrif ritstjóra Eiðfaxa sem birtust hér á síðunni um daginn og má nálgast hér.

 

Ég á það til að vakna á næturnar og hef gert síðan ég eignaðist dóttur mína, sem sagt síðastliðin 6 ár, þannig á svipuð tíma og hún var vön að vakna ca 4 vakna ég eins skemmtilegt og það er. Ég nýti oft tímann svara fyrirspurnum, sem texta, skrolla niður síður samfélagsmiðla eða skifti um profile mynd eins og fólk gerir bara.

Ég verð að viðurkenna að ég hnaut um pistil ritstjóra Eiðfaxa um daginn. Veit ekki…. leið pínu kjánalega að lesa hann…. svona eins og það væri verið að undirbúa lýðinn fyrir komandi tíma í kynbótadómum. Verð líka að viðurkenna að á haustmánuðum fannst mér vanta malt og pung í umfjöllun hestamiðla um breytingar á okkar ágæta dómkerfi þetta var dáldið eins og tapað/fundið tilkynningar í Dagskránni eða dánarfregnir og jarðarfarir.
Vantaði alveg viðtöl við ræktendur og knapa. Hvað finnst ykkur? Eru þessar breytingar að fara fleyta okkur áfram í hrossaræktinni? Er þetta fyrirkomulag rétt ?
Fattaði það ekki fyrr en ég fékk snapp frá Gísla um daginn þar sem hann var að klára sitt dómarapróf að það getur verið snúið að fjalla um hluti þegar maður situr báðu megin við borðið. Annars finnst mér Gísli frábær standa sig vel sem ritstjóri Eiðfaxa, myndi taka swipe til hægri ef hann væri á Tinder og eflaust bara kjósa hann til Forseta ef hann biði sig fram.

Lengi vel ætlaði ég bara að halda kjafti eins og hinir,en þá springur maður bara á endanum og er ekki trúr sjálfum sér. Er samtalið milli forystunnar og hrossaræktandans dautt?

Þegar við reiknum upp hross í nýja kerfinu lækka þau mörg hver í einkunn. En það að reikna hross upp î nýja kerfinu gefur ekki endilega rétta mynd. Því ekkert af þeim hrossum hafa leyst verkefnið í núverandi mynd. Staðreyndin er sú að þessi lækkun verður trúlega meiri þar sem verkefnið er flóknara. Því flóknara sem verkefnið verður mun að öllum líkindum færra af ungum hrossum mæta til dóms og forval mun aukast. Við þurfum að fá upplýsingar fyrst og fremst frá hrossum 4-6 vetra inn í kerfið og verkefnið á að miðast við að vel gert og tamið 5v trippi/einstaklingur sé að fara leysa það.
Finnst eins og það sé verið að rugla saman þjálfun uppbyggingu afrekshesta en kynbótadómur er Búfjármat. Gísli nefndi Frama frá Ketilsstöðum í sínum pistli það er rétt hann var ekki með flugeldasýningu 4 vetra en hinsvegar með hugarfar, upplag og frábæran þjálfara sem með mikilli elju og natni gerði hann að þeim afrekshesti sem hann er í dag þetta eru þúsundir vinnustunda en greinin ber ekki þúsundir vinnustunda í einn hest.

Það eru gerðar nokkrar breytingar á framkvæmd verkefnis meðal annars á að sína slakan taum í 3 sek til að fá úrvals einkunn á tölti. Sú hestgerð þar að segja sú sem virkar vel í slaktaumatölt er ekki endilega sú sem mér finnst best, ekki það að það er vel hægt að kenna vel tömdum hesti að ganga sjálfur frá taum í 3 sek en ég sé annmarka á framkvæmdinni hún býður uppá misræmi og mismunun t.d ef Danni sýnir hest 1-2-3 sek Palli sýnir hest talið hægar 1-2 komdu aftur. Þið skiljið hvað ég er að fara
Bestu hestarnir taka mann nefnilega í nefið ef maður gleymir sér. Vaða um rúmir á tölti við taum, hendast í brokk og éta svo brautina á skeiði. Þetta eru hestar með gangskil. Þar fyrir utan er ekkert svo brjálæðislega flókið að sjá hvort hestur sé við taum, frá taum eða á taum. Þarf þetta ?

Til að fá úrvals einkunn á stökki þarf að sýna greitt stökk og hægt stökk hægri/vinstri. Ímyndum okkur að Flaumur frá Sólvangi sé 5 vetra með frábært stökklag , eiginleikinn stökk er í úrvali. En hann er ekki orðinn jafnvígur þannig æiii færð bara 9 en í raun eru eðlisgæði gangtegundarinnar uppá meira. Eru þá upplýsingarnar sem við setjum inn í kerfið ekki bara rangar ?
Haukur Þrastarson er frábær handknattleiks maður það hvort hann skjóti jafnt með hægri eða vinstri 16 ára hefur ekkert með eðlis gæði drengsins að gera heldur þjálfar hann sig upp þannig hann endist betur í sportinu verði betri leikmaður og erfiðari við að eiga þegar hann mætir á HM alveg það sama með hrossin. Þannig þetta eru tíu ferðir þarftu væntanlega þrjár til að sannfæra dómara um að þetta sé úrval 30% af ferðunum. Sér maður þetta ekki bara eftir tvær?

Svo á að sýna fet tölt fet sem er góð æfing.. Ekkert að því en við erum með yngstu hrossin sem eru að ná styrk og jafnvægi og þurfa stundum að koma á floti inní hæga töltið. Það er ekki einu sinni beðið um fet /tölt / fet í tölti töltkeppni T1 . Þannig ef við ímyndum okkur Spuna frá Vesturkoti 5 vetra með sitt stóra Fet framkvæma þetta svona ungur. Hann býr yfir eiginleikanum úrvals tölti er frábær gæðingur búinn að sýna það og sanna ætlum við þá að takmarka hann við 8,5 þegar hann býr yfir eiginleikanum 9? Verður kerfið ekki bara of miðlægt? og upplýsingarnar gefa ekki rétta mynd.

Vægi fyrir höfuð er komið í 2% er ekki bara alveg eins hægt að hafa þetta núll . Kanski bara meira svona prinsipp og smekks atriði en þegar ég skoða dómskalann vil ég sjá skaparans meistaramynd fyrir mér . Málið er nefnilega það að fríðleiki og prúðleiki er það fyrsta sem kveikir í hugsanlegum kaupanda og skiftir oft á tíðum meira máli en hvort hesturinn skeiði eða tölti uppá 8,5 eða 9 . Þú pakkar ekki demant inní klósettpappír og ætlast til að fólk kaupi hann.

Ég heyrði einning hugmyndir sem voru uppi í Svíþjóð,þær voru á þann veg að ef stóðhestur er ekki kominn með ákveðinn fjölda afkvæma til dóms fyrir ákveðinn aldur megi ekki nota hann áfram … búum við í Norður Kóreu eða? Hvað á stóðhest eigandi að þurfa að bera á höndum sér afkvæminn til að mega nota hestinn sinn frekar en hann vill. Hesturinn gæti gefið af sér afreks hross þó hann hafi ekki verið sá vinsælasti, þá erum við að takmarka valkostina.

Svo ætla ég vinsamlegast að biðja RML að rífa sig í gang. Greinin ber ekki endalausar hækkanir, hvort svo sem það sèu skráningargjöld, skráninga bækur eða annað eins og staðan er í dag er það gjörsamlega taktlaust, ef þetta er svona dýrt að skrá hrossin okkar sem ég veit ekki betur en gerum meira og minna sjálf, og ef kostnaður við sýningar er svona gífurlegur þarf kanski bara 2 dómara en ekki 3 og þessar blessuðu bækur eru fáránlega dýrar það þarf gæta okkar hags líka.

Við verðum að passa uppá að samtalið milli greinarinnar og þeirra sem eru í forystu sé virkt og að við tökum ákvarðanir sem fleyta okkur lengra. Ég persónulega sé annmarka á þeim breytingum sem gerðar hafa verið . Ef ég væri ráðunautur myndi ég kalla til nokkra sýnendur ( þá er ég ekki að tala um 2 knapa á Hólum heldur bara holt og bolt)og ræktendur að borðinu með mér þetta eru hugmyndirnar, við viljum þróa okkur áfram, höldum prufusýningu og sjáum hvernig þetta kemur út í raun áður en við dembum þessu á. Ef það var gert má eh vinsamlegast leiðrétta mig.

Annars bara áfram við ?
Kv Dísa

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link