Gæti orðið yngstur
Yngstu hestar sem náð hafa 1.verðlaunum fyrir afkvæmi voru níu vetra þegar þeir náðu því marki en meðal þeirra hesta sem náðu þessum merka áfanga svo ungir eru Kraflar frá Miðsitju og Álfur frá Selfossi.
Mörgum gæðagripnum hefur reynst erfitt að ná þessu marki burt séð frá aldri en ef ættbókin er skoðuð þá er fróðlegt að sjá að hinn ættstóri Álffinnur frá Syðri-Gegnishólum gæti mögulega náð því að verða yngsti stóðhestur sögunar til að ná 1.verðlaunum fyrir afkvæmi.
Álfinnur á 15 afkvæmi á tamningaraldri og í stuttu samtali við Berg Jónsson segir hann það hafa hvarflað að sér að þetta væri mögulegt. „Við erum búin að frumtemja 14 afkvæmi hestsins og þau líta mjög vel út, en auðvita er það langsótt að þetta náist en þó mögulegt“ segir Bergur og bætir við að gaman væri ef það gengi.
Álffinnur er albróðir Álfs frá Selfossi, en Álfur náði þessu marki 9 vetra gamall. Álffinnur er núna með 126 stig í aðaleinkunn kynbótamats en ekkert dæmt afkvæmi.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH