Gera atlögu að sæti í landsliðinu
Erlingur Erlingsson og Herjólfur frá Ragnheiðarstöðum sigruðu í töltkeppni á WR íþróttamóti í Romme, Svíþjóð um helgina. Erlingur og Herjólfur hlutu 7,70 í einkunn í forkeppni og fengu svo 7,95 í lokaeinkunn í úrslitum.
Daníel Ingi Smárason sigraði 150 metra skeið á Græði frá Dalbæ, á 15,33 sekúndum og tryggði sér silfurverðlaun í slaktaumatölti einnig Græði. Hann sigraði hins vegar 250 metra skeið á Orion frá Lækjarbotnum, á tímanum 22,30 sek. og hlaut silfur P2 fljúgandi skeiði, einnig á Orion.
Miðað við árangurinn má ætla að Erlingur og Daníel ætli sér að gera atlögu að sæti í landsliði Íslands á Heimsmeistaramótinu í Herning í sumar.
Aðrar niðurstöður mótsins má nálgast hér.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH