“Getum allar verið í mjög góðum málum”

  • 7. apríl 2022
  • Fréttir
Viðtal við Glódísi Rún Sigurðardóttir

Lokakvöld Meistaradeildarinnar í hestaíþróttum er annað kvöld. Glódís Rún Sigurðardóttir er í þriðja sæti í einstaklingskeppninni í Meistaradeildinni og liðið hennar Ganghestar/Margrétarhof er í öðru sæti í liðakeppninni. Eiðfaxi hitti Glódísi á æfingu í Ölfushöllinni og tók hjá henni púlsinn.

“Ég stefni með Drumb frá Víðivöllum-fremri í töltið og í skeiðið verð ég með Blikku frá Þóroddsstöðum. Við stelpurnar ætlum að taka á okkur töltið en þetta verða ég, Ragnhildur Haraldsdóttir og Aðalheiður Anna Guðjónsdóttir sem keppa í því. Ég held við séum mjög sterkar og getum allar verið í mjög góðum málum. Ragnhildur er á Úlf frá Mosfellsbæ og Aðalheiður er á Flóvent frá Breiðstöðum,” segir Glódís en í skeiðinu keppa þau Glódís, Aðalheiður og Sigurður V. Matthíasson fyrir liðið. “Aðalheiður verður með Ásu frá Fremri-Gufudal og ég er ekki viss með hvern Siggi er enn hann mætti með tvo á æfingu og ég er ekki viss hvern hann skráði,” segir Glódís og bætir við að þau munu ekkert gefa eftir í baráttunni við Top Reiter. “Við ætlum að reyna að vinna þau. Við ætlum ekkert að gefa liðinu sigurinn alla veganna.”

Stóðhestaveislan er á laugardaginn í Ölfushöllinni og ætlar Glódís að vera þar með tvo hesta. “Ég mæti með eina hryssu undan Snilling frá Íbishóli en Magnús Bragi Magnússon ætlar að koma á honum og það verða einhver tvö, þrjú afkvæmi með honum. Ég hef kynnst nokkrum afkvæmum undan Snillingi og ég kann mjög vel við þau. Þetta eru skemmtilegar týpur, hágeng og með góð gangskil,” segir Glódís en einnig mætir hún með Hrannarsson.

Glódís kveðst vera mjög spennt fyrir sumrinu og þá sérstaklega Landsmóti. Þar stefnir hún á að tefla frá Drumbi sem er nýr keppnishestur hjá henni. “Ég hugsa að ég stefni með hann í töltið og svo er spurning hvort hann fari í ungmennaflokk eða jafnvel b flokk. Ég veit það ekki alveg. Það á eftir að koma í ljós hvernig þetta fer,” segir Glódís sem trúir því að það verði mikil stemning á mótinu enda margir búnir að bíða lengi eftir Landsmóti.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link