Gjafabréf til systkynanna á Dýrfinnustöðum-
Eins og fram kom í frétt hér fyrr á vefnum hafa orðið eigendaskipti á stóðhestinum Gusti frá Hóli. Eiðfaxa barst í hendur gjafabréf sent af Hrossaræktarsamtökum Austurlands til nýrra eigenda stóðhestsins Gusts frá Hóli og birtist það hér:
Ágætu systkyni !
Ingunn, Björg og Trausti, Dýrfinnastöðum Skagafirði.
Stjórn Hr.Aust. þakkar ykkur þá umhyggju og alúð sem þið hafið sýnt Gusti þann tíma sem hann hefur verið á Dýrfinnastöðum. Það veitir okkur mikla gleði að sjá hvað honum líður vel og er ánægður hjá ykkur. Það er ósk okkar að svo megi verða áfram og hann fái hjá ykkur varanlegt heimili.
Gustur frá Hóli er farinn að eldast og hættur að gagnast samtökunum sem kynbótahestur. Hann er heilsuhraustur, óbilaður í fótum og á skilið gott ævikvöld þar sem honum er sýndur sómi og fellur ekki í gleymskunnar dá.
Þess vegna færir Hr.Aust. ykkur systkynunum hér með eignarhlut sinn í Gusti til eignar.
Eignarhlutur Hrossaræktarsamtaka Austurlands ( kt. 680793-2209 ) í Gusti (IS1988165895) frá Hóli er 67% á móti 33% hlut Hrossaræktarsamtaka Eyfirðinga og Þingeyjinga. Hlutur Hr.Aust. er skuld- og veðbandalaus.
Eignarhlutur Hr.Aust. í Gusti IS1988165895 frá Hóli er gefinn og afhentur kvaðalaust.
Úlfsstöðum 20.10.2010
Stjórn Hrossaræktarsamtaka Austurlands.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH