Glaður frá Prestsbakka og Sólon frá Vesturkoti unnu a og b flokkinn

  • 14. júní 2022
  • Fréttir

Glaður frá Prestsbakka og Nils Christian Larsen fagna sigri. Mynd: @nilschristianlarsen

Niðurstöður frá norska meistaramótinu í gæðingakeppni

Norska meistaramótið í gæðingakeppni var haldið um helgina. Hér fyrir neðan er hægt að sjá niðurstöður frá mótinu.

Glaður frá Prestsbakka vann a flokkinn með 8,61 í einkunn en knapi á honum var Nils Christian Larsen. Möttull frá Túnsbergi var annar með einkunnina 8,49 en knapi á honum var Mona Tysland Lillehagen og í þriðja sæti var Lukka fra Bergkasa og Liv Runa Sigtryggsdottir með 8,48 í einkunn.

B flokkinn vann Sólon frá Vesturkoti með 8,63 í einkunn, knapi Elisabeth Sylte. Í öðru sæti var Thór-Steinn frá Kjartansstöðum með 8,60 í einkunn, knapi Nils Christian Larsen en þeir unnu einnig Tölt T3. Í þriðja sæti í b flokknum var Freyr var Nedre Sveen, knapi An-Magritt Morset Hegstad, en hann fékk 8,52 í einkunn.

NIÐURSTÖÐUR FRÁ MÓTINU

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link