Glæsileg sunnlensk hross
Í gærkvöldi fór fram reiðhallarsýningin Stórsýning Sunnlenskra hestamanna í Rangárhöllinni. Húsfyllir var og stemmningin góð enda voru atriði af ýmsum toga í boði eins og vel æfð atriði yngstu kynslóðarinnar í Geysi, rallý á hestvögnum og grímuklæddar töltskvísur undir stjórn Magnúsar Lárussonar.
Auk þessa voru hefðbundin atriði ræktunarbúa, afkvæmahópa og hópar hryssna og stóðhesta. Strax eftir hlé voru stuttar kappreiðar á skeiði í gegn um höllina sem Sæmundur Sæmundsson vann en gaman er að brjóta sýningu sem þessa upp með slíku atriði sem sett var upp í hléi og gekk hratt og vel í framkvæmd.
Flest þau hross sem fram komu voru undir stjórn þeirra knapa sem þau hafa þjálfað en þó var undantekning á því þegar tveir þekktir stóðhesta komu saman fram undir stjórn nýrra eiganda og knapa. Þetta voru þeir Sigur frá Stóra-Vatnsskarði setinn af Vilborgu Smáradóttur en hann er undan Álfi frá Selfossi og Lukku frá Stóra-Vatnsskarði, hátt dæmdur klárhestur með 9,5 fyrir tölt. Með honum var svo sigurvegari 4 vetra flokks stóðhesta frá Landsmóti 2016 á Hólum; Sirkus frá Garðshorni setinn af Kristínu Magnúsdóttur. Þeir fóru fimlega um salinn og gaman var að sjá þessa hesta í nýjum höndum.
Lokaatriði kvöldsins var svo skipað tveimur stjörnum frá síðasta Landsmóti, feðginunum Ský frá Skálakoti og Öskju frá Efstu-Grund. Skýr stóð efstur til 1.verðlauna fyrir afkvæmi á LM2018 og dóttir hans stóð efst í 4 vetra flokki hryssna á sama móti.
Sýningin var vel skipulögð og framkvæmd, en gaman er að sjá Rangárhöllina eftir þá uppliftingu sem hún hefur fengið og nutu gestir sér vel að best var séð.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH