Landbúnaðarháskóli Íslands Glæsileg uppskeru- og útskriftarhátíð Reiðmannsins á Mið-Fossum

  • 4. maí 2026
  • Fréttir

Í lok apríl fór fram hátíðleg útskriftarhelgi Reiðmannsins í glæsilegri aðstöðu Landbúnaðarháskóla Íslands á Mið-Fossum í Borgarfirði. Tæplega 250 nemendur brautskráðust úr náminu að þessu sinni eftir metnaðarfullan vetur, en námið nýtur sívaxandi vinsælda um land allt.

Dagskráin á Mið-Fossum var fjölbreytt og hófst strax á laugardagsmorgni. Reiðmaðurinn, sem samanstendur af bæði bóklegu og verklegu námi, var kenndur á 14 stöðum á landinu í vetur í alls 22 hópum. Það var því mikið um dýrðir þegar þessi stóri hópur kom saman til að fagna áfanganum.

Björn Ragnar Reynisbikarhafi ársins

Hápunktur laugardagsins var úrslitakeppni þeirra nemenda sem sköruðu fram úr í sínum hópum í vetur. Fimmtán nemendur kepptu í Reiðmanninum I og sjö í Reiðmanninum II. Sýningarnar þóttu bera vott um vandaðan undirbúning og fagmennsku þar sem gott samspil knapa og hests var í fyrirrúmi.

Björn Ragnar Morthens, á hestinum Glófaxa frá Reykjavík, hlaut hinn eftirsótta Reynisbikar að þessu sinni. Bikarinn er veittur þeim nemanda á öðru ári sem hlýtur hæstu einkunn fyrir lokasýningu sína. Björn Ragnar lét það ekki duga heldur hlaut einnig viðurkenningu fyrir hæstu meðaleinkunn úr verklegum prófum í Reiðmanninum II. Í Reiðmanninum I var það Brynja Dís Emilsdóttir sem hlaut viðurkenningu fyrir hæstu einkunn úr verklegum prófum.

Alls voru 241 nemandi útskrifaður úr Reiðmanninum I, II og III, auk þeirra sem luku sérstöku Keppnisnámi Reiðmannsins.

Mikil keppnisgleði á Reiðmannsmótinu

Seinni hluti helgarinnar var tileinkaður Reiðmannsmótinu sem nú var haldið í þriðja sinn á nýuppgerðum keppnisvelli skólans. Mótið er löglegt keppnismót og voru skráningar um 120 talsins. Keppt var í tölti, fjórgangi, fimmgangi og flugskeiði í blíðskaparveðri.

Þátttakendur komu úr öllum stigum námsins, þar á meðal 46 nemendur úr Keppnisnámi Reiðmannsins. Metnaður og gleði einkenndi keppnina og má sjá öll úrslit mótsins í HorseDay appinu.

Hægt er að sjá helstu niðurstöður úr úrslitum námsins hér að neðan:

Úrslit – Reiðmaðurinn I

Ilona Johanna Van Baalen á Óvænt frá Hvítanesi

Mathilde Larsen á Staka frá Íbishóli

Brynja Dís Elmarsdóttir á Mjölni frá Syðra Lágafelli

Arnar Ingi Lúðvíksson á Kletti frá Vatni

Birta Berg Sigurðardóttir á Kvika frá Neðri-Hrepp

Úrslit – Reiðmaðurinn II

Björn Ragnar Morthens á Glófaxa frá Reykjavík

Helga Björg Helgadóttir á Fjólu frá Þúfu í Landeyjum

Ari Sigurðsson á Hugi frá Eystri-Hól

Jóna Mjöll Kúld á Hrafni frá Þúfu í Kjós

Pétur Ingi Grétarsson á Krónu frá Saurbæ

Opnað hefur verið fyrir skráningar í Reiðmanninn fyrir næsta vetur og er áhugasömum bent á vef Endurmenntunar LbhÍ.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link