Glæsilegt Reykjavíkurmeistaramót framundan

  • 18. júní 2020
  • Fréttir

Skráning er opin til og með 22. júní og er í fullum gangi á íþróttamót Fáksmanna, Reykjavíkurmeistaramótið, sem er jafnan stærsta og sterkasta íþróttamót Íslandshestamennskunar á hverju ári. Mótið fer fram í Víðidalnum dagana 29. júní – 5. júlí.

Á Facebook má finna viðburðinn undir nafninu „Reykjavíkurmeistaramót Fáks 2020“ og þar má finna ýmsar upplýsingar um mótið, svo það er um að gera að melda sig eða merkja við „going“ á þann viðburð til að fylgjast með fréttum.

Skráningu á mótið lýkur á miðnætti mánudaginn 22. júní. Skráð er í gegnum SportFeng, https://skraning.sportfengur.com. Allar spurningar varðandi skráningar á mótið skal senda skriflega á [email protected]. Skráningar sem berast eftir að skráningarfresti lýkur verða ekki teknar gildar.

Nokkur atriði sem keppendur skulu hafa í huga:

  • Nái skráningar ekki 25 í flokki eru eingöngu riðin A-úrslit.
  • Nái skráningar ekki 10 í flokki fellur flokkurinn niður.
  • Keppendur eru ábyrgir fyrir skráningu sinni.
  • Keppendur skulu hafa kynnt sér nýjustu útgáfu af keppnisreglum. Sjá nánar á vef LH og/eða FEIF.

 

Skráningargjöld eru eftirfarandi:

  • 7.500 kr – meistaraflokkur og ungmennaflokkur (nema PP1, T3, V2 kr. 7.000)
  • 7.000 kr – 1. og 2. flokkur
  • 5.500 kr – barna- og unglingaflokkur
  • 5.500 kr – 150m, 250m og 100m flugskeið

 

Það verður mikill hestakostur og glæsileg umgjörð sem einkenna munu Víðidalinn í Reykjavík þessa mótsdaga um næstu mánaðarmót og allir velkomnir að koma og fylgjast með heimsklassa sýningum í öllum aldursflokkum!

 

Boðið verður uppá eftirfarandi flokka náist næg þátttaka:

 

# Flokkur  Keppnisgrein
1 Barnaflokkur Tölt T3
2 Barnaflokkur Fjórgangur V2
3 Barnaflokkur Tölt T7
4 Opinn flokkur Skeið 250m P1
5 Opinn flokkur Skeið 150m P3
6 Opinn flokkur Flugskeið 100m P2
7 Opinn flokkur – 1. flokkur Tölt T3
8 Opinn flokkur – 1. flokkur Tölt T4
9 Opinn flokkur – 1. flokkur Fjórgangur V2
10 Opinn flokkur – 1. flokkur Fimmgangur F2
11 Opinn flokkur – 1. flokkur Gæðingaskeið PP1
12 Opinn flokkur – 2. flokkur Tölt T3
13 Opinn flokkur – 2. flokkur Tölt T4
14 Opinn flokkur – 2. flokkur Fjórgangur V2
15 Opinn flokkur – 2. flokkur Fimmgangur F2
16 Opinn flokkur – 2. flokkur Gæðingaskeið PP1
17 Opinn flokkur – 2. flokkur Tölt T7
18 Opinn flokkur – Meistaraflokkur Tölt T1
19 Opinn flokkur – Meistaraflokkur Tölt T2
20 Opinn flokkur – Meistaraflokkur Tölt T3
21 Opinn flokkur – Meistaraflokkur Fjórgangur V1
22 Opinn flokkur – Meistaraflokkur Fjórgangur V2
23 Opinn flokkur – Meistaraflokkur Fimmgangur F1
24 Opinn flokkur – Meistaraflokkur Fimmgangur F2
25 Opinn flokkur – Meistaraflokkur Gæðingaskeið PP1
26 Unglingaflokkur Tölt T3
27 Unglingaflokkur Tölt T4
28 Unglingaflokkur Fjórgangur V2
29 Unglingaflokkur Fimmgangur F2
30 Unglingaflokkur Gæðingaskeið PP1
31 Unglingaflokkur Tölt T7
32 Ungmennaflokkur Tölt T1
33 Ungmennaflokkur Tölt T2
34 Ungmennaflokkur Tölt T3
35 Ungmennaflokkur Fjórgangur V1
36 Ungmennaflokkur Fjórgangur V2
37 Ungmennaflokkur Fimmgangur F1
38 Ungmennaflokkur Fimmgangur F2
39 Ungmennaflokkur Gæðingaskeið PP1

 

 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link