Glæsileikinn selst
Titilinn Ræktunarbú keppnishesta er tiltölulega nýr af nálinni en nú í ár voru það Magnús Svavarsson og Hólmfríður Björnsdóttir á Blesastöðum 1a sem hlutu þessa nafnbót á Uppskeruhátíð hestamanna. Þau eru ræktendur Ölfu, Fláka, Óskars og Möllers frá Blesastöðum 1a sem öll skipuðu sér í fremstu röð keppnishrossa á árinu. Blaðamaður Eiðfaxa settist niður með þeim Magnúsi og Hólmfríði í kaffistofu hesthúsinu á Blesastöðum og spurði um lykillinn að góðri ræktun keppnishrossa.
„Við viljum stefna á sem glæsilegust hross því að glæsileikinn selur. Við höfum enga galdralausn á hvaða hestar eru bestir til ræktunar en reynum að para hryssu og stóðhest saman samkvæmt því sem okkur finnst passa og vonum svo að það lukkist. Okkur hefur tekist vel að rækta gott tölt en höfðum áhyggjur af því um tíma að ekki hafi verið passað nógu vel upp á brokkið í ræktuninni. Nú í seinni tíð höfum við verið að styrkja það í stofninum okkar. Það er gott að byggja stofninn upp á góðum tölthrossum og bæta svo ofan á það brokki og jafnvel skeiði. Þá leið teljum við líklegasta til að rækta topp alhliðahross,“ segja þau meðal annars í viðtalinu sem nálgast má í jólablaði Eiðfaxa.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH