Glampi frá Vatnsleysu hefur engu gleymt

  • 29. júní 2012
  • Fréttir
Glampi frá Vatnsleysu hefur engu gleymt

Austurkot mætti með 8 hesta til leiks. Fremst í fararbroddi riðu hjónin í Austurkoti þau Páll Bragi Hólmarsson og Hugrún Jóhannsdóttir. Flott sýning hjá Austurkoti og vel útfærð. Meðal gæðinga frá Austurkoti voru þau Snæsól, Álfadrottning og Heiðar. Álfhólar voru á síðasta Landsmóti og mættu aftur nú í ár. Fremstur í farabroddi mætti Álfhólakóngurinn Þrumufleygur frá Álfhólum en knapi á honum var John Kristinn Sigurjónsson. Dívurnar, Sara Ástþórsdóttir og Díva, létu sig ekki vanta og komu inn á völlinni á fleygi ferð á slökum taum. Álfhólar hlutu mikið lófaklappa og heyrðist mikil hróp og köll úr brekkunni.

Ekki vantaði fótaburðinn hjá Vatnsleysu. Fótaburðarkóngurinn, Glampi frá Vatnsleysu, mætti 24 vetra og hefur greinilega engu gleymt. En mikið var klappað og blístrað þegar áhorefndur sáu hann birtast á vellinum. Gaman var að sjá sýninguna hjá Kjartansstöðum en Töfri frá Kjartansstöðum fór fallega enda frábær töltari. 

Fláki, tölt maskínan Alfa, Óskar og Úlfhildur voru meðal þeirra gæðinga sem komu fram fyrir hönd Blesastaða 1A. Glæsileg ræktun á blesastöðum og geta þau Magnús og Hólmfríður verið stolt. Knaparnir hjá Kirkjubæ skörtuðu fallegum lopapeysum sem var skemmtileg tilbreyting frá jökkum og hvítum reiðbuxum sem hefur verið ráðandi síðust daga. Flottir hestar og flott sýning. Hæfileikahesturinn Hrannar frá Flugumýri leiddi Flugumýrarhópinn. Brún hross voru ríkjandi í hópnum hjá Flugumýri. Hrannar fékk þó ekki alla athyglina en einnig hlaut Kólga frá Flugumýri Leiknisdóttir verðskuldaða athygli. Flugumýri eru búin að sýna fram á það að það er hægt að rækta hross sem eru með tölt og brokk á við klárhest en einnig flugvakrir.

Í lokin var athugaða hvaða hrossaræktarbú nyti mesta vinsælla hjá áhorfendum og heyrðist blaðamanni það vera mjótt á munum hjá Syðri-Gegnishólum, Eystra-Fróðholti, Álfhólum, Vatnsleysu og Blesastöðum

Frábærar sýningar hjá þessum ræktunarbúum. Frábær skemmtun. Nú taka við skemmtiatriði þangað til að tölt veislan byrjar en b úrslit í tölti hefjast kl. 21:45.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link