Gleðilegt nýtt ár kæru hestamenn

  • 31. desember 2020
  • Fréttir
Kveðja frá Guðna Halldórssyni formanni LH

Kæra hestafólk og vinir.

Það er við hæfi á jólum og áramótum að líta til baka yfir árið sem senn gengur sinn veg og ekki síður að horfa fram á veginn og láta sig hlakka til nýs árs með nýjum áskorunum og viðfangsefnum.

Hjá hestamönnum sem öðrum, einkenndist árið 2020 af þeim óboðna og óvænta vágesti sem knúði dyra í upphafi árs, hinni illvígu veiru Covid 19.  Segja má að meira og minna allt sem tengist skipulögðu móta- og samkomustarfi hafi gengið úr skorðum á árinu. Landsmót, Norðulandamót, Íslandsmót og flestar aðrar samkomur okkar hestafólks voru slegnar af vegna veirunnar.

Við hestafólk erum þó svo heppin að okkur hefur þrátt fyrir allt gefist kostur á að stunda okkar sport og njóta samvista með þessari frábæru skepnu sem hesturinn okkar er. Fyrir það eigum við að vera þakklát og fagna, þó að vissulega sé orðin nokkur uppsöfnuð þörf hjá okkur hestamönum fyrir að hittast og gleðjast saman.

Reyndar bendir margt til þess að töluverð aukning hafi orðið í almennum útreiðum og hestaferðum Íslendinga. Viðskipti með hesta blómstra sem aldrei fyrr og hefur útflutningur á hrossum stóraukist á árinu enda æ fleiri að átta sig á því hversu stórkostlegt það er að njóta samvista með íslenska hestinum.

Undir lok árs var Landsþing LH haldið með rafrænum hætti í þetta skiptið. Þar bar einna helst til tíðinda að Lárus Ástmar Hannesson, formaður LH til síðustu 6 ára gaf ekki kost á sér til áframhaldandi starfa og undirritaður var kjörinn formaður í hans stað. Ég vil nota þetta tilefni til að þakka Lárusi og fráfarandi stjórnarmönnum fyrir þeirra frábæra starf í þágu okkar hestamanna. Einnig er mér ofarlega í huga þakklæti fyrir þann heiður sem hestamenn hafa sýnt mér, með því að treysta mér fyrir þessu mikilvæga starfi. Undir því mun ég reyna að standa, lít með tilhlökkun til þeirra starfa sem framundan eru og til samstarfsins með  öllu því frábæra fólki sem hefur gefið kost á  sér til starfa með okkur hestamönnum í hinum ýmsu nefndum og stjórnum.

Þegar þessi orð eru rituð er sól farin að hækka á lofti, daginn tekið að lengja og margt bendir til þess að lífið muni smám saman komast í eðlilegt horf á nýju ári. Það er því til margs að hlakka enda mikið um spennandi viðburði og samkomur sem áætlað er að halda á árinu 2021. Má þar nefna HM í Herning, Íslandsmót á Hólum, Íslandsmót barna og unglinga og Fjórðungsmót Vestulands sem án efa verður allt vel sótt verði búið að létta á samkomutakmörkunum, sem við vonum auðvitað.

Um leið og ég þakka hestafólki nær og fjær fyrir góð samskipti á árinu þá óska ég, fyrir hönd LH, ykkur öllum gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári.

Skrauthólum á Þorláksmessu að vetri.

Guðni Halldórsson, formaður Landssambands hestamannafélaga

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link