Glóðafeykir frá Halakoti
Tekið verður við hryssum undir Glóðafeykir frá Halakoti mánudaginn 24 júní á milli 19 og 20 við Stóru-Fellsöxl.
Vinsamlega skráið hryssurnar inn á http://www.hrossvest.is/
Glóðafeykir sigraði eftirminnilega B-flokk gæðinga á landsmóti hestamanna á síðasta ári,undir dyggri stjórn Einars Öder Magnússonar .
Glóðafeykir hesfur hlotið mjög góðann dóm sem einstaklingur og sýnt og sannað að hann er einn fremsti gæðingur landsins í röðum klárhesta.
- Glóðafeykir hefur farið hæst í 9,01 í B-flokki
- Glóðafeykir er með 8,34 í aðaleinkun kynbótadóms
- Glóðafeykir er með fimm níur í hæfileikadómi
- Faðir Glóðafeykis ,Rökkvi frá Hárlaugsstöðum sigraði líka B-flokk á landsmóti.
- Móðir Glóðafeykis ,Glóð frá Grjóteyri er með fjórar níur í hæfileikadómi og var mögnuð tölthryssa.
nánari uppl veita Ingibergur 895128
eða Páll Bragi 8977788
Agnar og Kvistur á nýju hallarmeti
„Hún bjó yfir gríðarlegri orku og getu“
Enn þarf að fresta skráningum á kynbótasýningar
Hafnarfjarðarmeistaramótið í beinni í dag