Glódís og Kamban komin á toppinn

  • 27. júní 2012
  • Fréttir
Glódís og Kamban komin á toppinn

Já það er ótrúlegt að sjá þau Kamban og Glódísi í braut og það er greinilegt að þau heilla brekkuna. Glódís og Kamban skutu sér rétt í þessu í efsta sætið með einkunnina 8,76.  Sylvís Sól Guðmundsdóttir er í öðru sæti með 8,51, þriðja er Telma Dögg Tómasdóttir með 8,48, fjórða er  Annika Rut Arnardóttir með 8,39 og fimmti er Anton Hugi Kristinsson með einkunnina 8,38.

En til að komast í b úrslit þarf 8,01.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link