Glódís og Kamban með 8,97
Glódís Rún Sigurðardóttir var að ljúka keppni í barnaflokki en Glódís sigraði barnaflokkinn í fyrra á Landsmótinu. Glódís reið eins og herforingi. Öryggið uppmálað reið hún í 8,97 og tryggði sér efsta sætið. Óneitanlega glæsilegt par þau Kamban, áreynslulaus og falleg sýning. Það er greinilegt að Glódís ætlar sér stóra hluti á þessu Landsmóti en í viðtali við Eiðfaxa segist hún ætla reyna verja titilinn.
Viðtalið við Glódísi er hægt að sjá í nýjasta tölublaði Eiðfaxi.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH