Glódís Rún knapi ársins hjá Sleipni

  • 25. október 2022
  • Fréttir

Glódís Rún Sigurðardóttir er knapi ársins hjá hestamannafélaginu Sleipni. Mynd Instagram @glodisrun

Árshátíð hestamannafélagsins Sleipnis

Árshátíð Sleipnis fór fram síðasta laugardag í Hvíta Húsinu á Selfossi. Vel var mætt á árshátíðina og eins og venja er voru knapar ársins hjá félaginu verðlaunaðir.

Glódís Rún Sigurðardóttir var útnenfd knapi ársins hjá hestamannafélaginu en hún átti góðu gengi að fanga á keppnisvellinum. Tveir Íslandsmeistaratitlar og annað sætið í ungmennaflokki á Landsmóti. Einnig hlaut hún viðurkenningu fyrir bestan árangur í 150 m. skeiði af félagsmönnum en tíminn var 14,29 sek á Bliku frá Þóroddsstöðum og hlaut hún einnig viðurkenningu fyrir árangur sinn í yngri flokkunum.

Helgi Þór Guðjónsson hlaut b flokks viðurkenningu félagsins fyrir árangur sinn á Þresti frá Kolsholti en þeir urðu m.a. í þriðja sæti í b flokknum á Landsmótinu en Helgi var einnig útnenfndur gæðingaknapi ársins hjá hestamannafélaginu. Valdís Björk Guðmundsdóttir hlaut a flokks viðurkenningu félagsins fyrir árangur sinn á Ramónu frá Hólshúsum.

Ragnhildur Haraldsdóttir var útnend íþróttaknapi Sleipnis, Karl Áki Sigurðsson hlaut viðurkenningu fyrir hæst dæmda hrossið ræktað af félagsmanni (Viðar frá Skör, 9,04), Sigursteinn Sumarliðason fyrir besta tíma ársins í 250 m. skeiði og Daníel Gunnarsson fyrir besta tíma ársins í 100 m. skeiði

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link