Góðir töltarar á Reykjavíkurmóti
Viðar Ingólfsson gerði það gott á Reykjavíkurmóti í hestaíþróttum. Hann varð efstur í tölti Meistara á Tuma frá Stóra-Hofi, efstur í fimmgangi Meistara á Má frá Feti, annar í fimmgangi í 1. flokki á Aspari frá Fróni og samanlagður sigurvegari í fimmgangsgreinum í 1. flokki. Allir hestarnir vel þjálfaðir og riðnir hjá þessum snjalla knapa.
Tumi var mjög góður í úrslitum í tölti og lítur nú út fyrir að hann sé búinn að ná sér að fullu af meiðslum sem hann varð fyrir í bógi fyrir nokkrum misserum. Hann var einfaldlega langbestur og fékk 9,06 í aðaleinkunn. Jarl frá Mið-Fossum er nú líka búinn að ná takti eftir misjafnt gengi í vetur. Hann og Sigurbjörn höfnuðu í öðru sæti með 8,67. Þessir tveir báru nokkuð af í úrslitunum.
Úrslit í tölti ungmenna voru einn af hápunktum mótsins. Nokkrar ungar framúrskarandi reiðkonur fóru þar á kostum: Arna Ýr Guðnadóttir, sem bar sigur úr býtum á Þrótti frá Fróni með 8,11, Hekla Katarína Kristinsdóttir á Gautreki frá Torfastöðum með 7,94, Agnes Hekla Árnadóttir á Vigni frá Selfossi með 7,83, Helga Una Björnsdóttir á Karitas frá Kommu með 7,83 og Sara Sigurbjörnsdóttir á Líf frá Möðrufelli með 7,80.
Þetta er magnaður hópur og allar hafa burði til að ná toppi í hestaíþróttum í framtíðinni. Ekki má gleyma því að Arnar Bjarki Sigurðsson hélt uppi heiðri karla í úrslitunum, varð þriðji á Kamban frá Húsavík með 7,89.
Í heildina fór Reykjavíkurmótið vel fram. Veðrið lék við menn og hesta. Breiddin í hestakosti eykst ár frá ári og mátti merkja það mjög greinilega á þessu móti.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH