Grímutölt Sörla
Grímutölt Sörla verður haldið á laugardaginn kemur þann 11. febrúar að Sörlastöðum í Hafnarfirði kl. 14:00.
Allir klárir með búningana?
Veitt verða verðlaun fyrir besta búninginn í hverjum flokki og tilþrifaverðlaun verða afhent að vanda. Nú er tímabært að setjast niður og leggja drög að flottum búning.
Skráning fer fram milli 12:00 og 13:00 sama dag.
Skráningargjald er 1000 krónur fyrir polla og 1500 krónur fyrir aðra.
Hvetjum alla til að taka þátt í frábærri skemmtun.
Mótanefnd Sörla
Tillaga um einn varanlegan Landsmótsstað lögð fyrir landsþing
Áhugamannadeild Norðurlands áfram á EiðfaxaTV