Gróf reiðmennska í kynbótasýningum
Knapar eru aðal áhrifavaldurinn þegar kemur að áverkum á kynbótahrossum í sýningum. Þetta hefur komið í ljós með aukinni söfnun gagna um áverka sem hross verða fyrir í munni og á fótum í kynbótasýningum. Nokkrir knapar sem skera sig úr munu fá senda skriflega áminningu á næstunni. Þetta kom fram í máli Guðlaugs Antonssonar, hrossaræktarráðunauts, á Hrossarækt 2010. Ekki verða þó birt opinberlega nöfn þeirra knapa sem eru með flesta áverka. Ekki kom fram hvort nöfn „hestvænna“ knapa verða birt.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Fjórðungsmót Austurlands á næsta ári