Guðmar býður upp á kennslu og þjálfun
Guðmar Þór Pétursson hefur, eins og margir þekkja, rekið tamningarstöð í Bandaríkjunum til margra ára. Þar hefur hann fengist mikið við kennslu, þjálfun og tamningar auk þess að vera ötull í kynningu og markaðssetningu á íslenska hestinum í Bandaríkjunum. Hann hefur kynnt sér margskonar reiðmennsku- og þjálfunaraðferðir. Hann á einnig að baki farsælan feril í keppni og þjálfun hérlendis.
Guðmar Þór mun vera hér á landi frá miðjum desember til loka janúar og mun bjóða upp á námskeið og kennslu að Staðarhúsum í Borgarfirði en hefur þó tök á að fara víðar sé þess óskað. Kennslan hentar öllum reiðmönnum, bæði áhugafólki og vönum keppnisknöpum. Auk þess mun Guðmar Þór taka að sér hross í þjálfun að Staðarhúsum og eru því örfá pláss laus.
Nánari upplýsingar og pantanir berast í síma 8924050 (Linda Rún) og Guðmar Þór 8966726 eftir 16. desember og í gegnum póstfangið [email protected]
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH