Guðmar, Sandra og Ylva sigurvegarar B.E. deildarinnar

  • 20. apríl 2024
  • Fréttir
Keppni lokið í B.E. æskulýðsdeild Léttis

Keppni í B.E. æskulýðsdeild Léttis er lokið en síðasta mótið var haldið síðustu helgi þegar keppt var í tölti og skeiði.

Keppnin er einstaklingskeppni og er keppt í þremur flokkum, ungmenna-, unglinga- og barnaflokki. Keppt er í fimm greinum og telur árangurinn til stiga en hér fyrir neðan er hægt að sjá hverjir voru í efstu þremur sætunum í hverjum flokki.

Guðmar Hólm Ísólfsson Líndal var efstur í ungmennaflokki, Sandra Björk Hreinsdóttir var efst í unglingaflokki og í barnaflokki var það Ylva Sól Agnarsdóttir.

Ungmennaflokkur:
1.Guðmar Hólm Ísólfsson Líndal
2. Margrét Ásta Hreinsdóttir
3. Auður Karen Auðbjörnsdóttir

Unglingaflokkur:
1. Sandra Björk Hreinsdóttir
2. Arnór Darri Kristinsson
3. Kristín Maren Frostadóttir

Barnaflokkur:
1. Ylva Sól Agnarsdóttir
2. París Anna Hilmisdóttir
3. Viktor Arnbro Þórhallsson

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar