Guðmundur „annar“ fyrstur

  • 28. febrúar 2013
  • Fréttir
Guðmundur "annar" fyrstur

Það var mikið af glæsilegum sýningum í fimmgangskeppni Meistaradeildarinnar sem fram fór í kvöld. Hestakostur kvöldsins var skemmtileg blanda af áður þekktum gæðingum og ungum framtíðarhestum.

Svo fór að Guðmundur Björgvinsson á Sólbjarti frá Flekkudal sigraði með nokkrum yfirburðum og hlutu þeir meðal annars þrjár níur og eina níufimmu fyrir skeið í úrslitum. Sólbjartur er sonur Pyttlu frá Flekkudal sem enn styrkir stöðu sína sem ein allra fremsta gæðingamóðir sem uppi hefur verið, en Sólbjartur er sonur hennar og Hugins frá Haga. Sólbjartur er heilsteyptur alhliðagæðingur með allar gangtegundir góðar, en bræður hans þeir Glymur og Frægur hafa einnig verið á meðal fremstu fimmgangshesta síðustu ára. Í öðru sætu urðu Sigurður V Matthíasson á glæsigripnum Mætti frá Leirubakka en þeir hafa sjaldan verið betri. Þriðju urðu þeir Viðar Ingólfsson og Már frá Feti.

Kvöldið byrjaði á tveimur frábærum sýningum hjá þeim Þorvaldi Árna og Kiljan frá Steinnesi og Sylvíu á nýstirninu Héðni Skúla frá Oddhól. Það er alltaf erfitt að ríða á vaðið í svona sterkri keppni en það var ljóst frá upphafi að Þorvaldur og Kiljan myndu blanda sér í baráttu þeirra fremstu. Svo fór að Þorvaldur og Kiljan enduðu í B-úrslitum og unnu þeir sig svo upp í A-úrslit og enduðu fimmtu. Héðinn Skúli er sjarmatröll, mikið hágengur og fasmikill og leyst Sylvía verkefni kvöldsins með stakri prýði, fagmannlegri reiðmennsku og frábærri ásetu. Þau enduðu kvöldið í fjórða sæti. Þar fer par sem sannarlega á eftir að láta að sér kveða í framtíðinni.

Annað nýstirni sem fram kom í kvöld var Oddur frá Breiðholti sem Árni Björn reið en hann er sonur Þokka frá Kýrholti og Gunnvarar frá Miðsitju. Oddur er aðeins á sjötta vetri og gaman verður að fylgjast með þeim félögunum í framtíðinni.

Eftir frábæra byrjun tveggja fyrstu hestanna þá komu tvær afleitar sýningar þekktra keppnishesta þeirra Stakks frá Halldórsstöðum og Konserts frá Korpu, sigurvegara fimmgangsins í fyrra. Stakkur þessi mikli gæðingur var rétt eins og drjúgur miðlungur. Það má telja undarlegt að okkar fremstu menn eins og Sigurbjörn komi fram með þekkta hesta í þessu formi og það sama er hægt að segja um Berg Jónsson á Flugni frá Ketilsstöðum sem endaði meðal neðstu hesta þetta kvöldið. Konsert vart skugginn af sjálfum sér miðað við formið sem hann var í fyrir ári síðan, en hann var líka dapur í gæðingafiminni og virkar hann orkulaus og alls ekki klár í þá hörðu keppni sem fimmgangurinn var í kvöld.

Ævar Örn átti mjög góða sýningu í forkeppninni og sást þar grilla í þann úrvalsknapa sem Ævar er en stundum hefur það virst sem svo að annað hvort skorti upp á hestakostinn hjá Ævari til að sýna takta eins og í kvöld og/eða kæruleysi verði honum að falli þegar að keppni kemur. En í kvöld sýndi Ævar að hann á full erindi meðal þeirra bestu þó svo að tveir af þremur skeiðsprettum hafi farið í vaskinn eins og stundum gerist.

Ein af dökku hliðum kvöldsins var reiðmennska Eyjólfs Þorsteinssonar og Valdimars Bergstað. Réttast hefði verið að gefa þeim báðum áminningar. Það var flekkur á annars ágætri dómgæslu að hafa ekki kjark í að ávíta þessa knapa. Sýning  Valdimars fór algerlega út um þúfur og reiðmennskan gróf. Eyjólfur er einn af þeim knöpum sem gefur íslenskum stangarmélum slæmt orð og virðist vera algerlega fyrirmunað að ríða hesti á stöngum án þess að allt sé algerlega í lás. Knapar eins og Eyjólfur geta því miður orðið til þess að gefa umræðu um að banna stangarmél í keppni byr undir báða vængi. Þessi gagnrýni hefði jafnframt átt við um reiðmennskuna á Klerk frá Bjarnanesi og sigurvegara fjórgangsins Hlekk frá Þingnesi. Eflaust geta fleiri knapar tekið til sín þá gagnrýni sem hér er sett fram um stangarreið Eyjólfs og sannarlega hægt að taka undir að vart finnist erfiðari aðstæður til að ríða fimmgang en í höllum sem Ölfushöllinni. Samt er ekki hægt að forðast endalaust umræðuna þó svo að hún sé ekki uppbyggjandi.

Ekki er hægt að ljúka umfjöllun um keppni kvöldsins án þess að minnast á Seif frá Prestsbakka sem var klárlega einn af flottustu hestum kvöldsins en sýningin hjá þeim Hinriki og Seif sem byrjaðu mjög vel losnaði í sundur og endaði þannig að útséð var með frekari keppni þetta kvöldið en með heilli sýningu er klárt að þeir geta vel staðið meðal þeirra bestu í keppnum á komandi tímabili.

 Sæti    Keppandi    Heildareinkunn  
1    Guðmundur Björgvinsson / Sólbjartur frá Flekkudal 7,90   
2    Sigurður Vignir Matthíasson / Máttur frá Leirubakka 7,55   
3    Viðar Ingólfsson / Már frá Feti 7,45   
4    Sylvía Sigurbjörnsdóttir / Héðinn Skúli frá Oddhóli 7,31  
5    Þorvaldur Árni Þorvaldsson / Kiljan frá Steinnesi 6,98   
6    Ævar Örn Guðjónsson / Boði frá Breiðabólsstað 6,36 

B-Úrslit

 

  Sæti    Keppandi    Heildareinkunn  
6    Þorvaldur Árni Þorvaldsson / Kiljan frá Steinnesi 7,10   
7    Elvar Þormarsson / Skuggi frá Strandarhjáleigu 7,00   
8    Reynir Örn Pálmason / Greifi frá Holtsmúla 1 6,98   
9    Eyjólfur Þorsteinsson / Ögri frá Baldurshaga 6,71   
10    Árni Björn Pálsson / Oddur frá Breiðholti í Flóa 6,67 

[email protected]

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link