Guðný Margrét sigrar b úrslit í tölti 17 ára og yngri
Guðný Margrét Siguroddsdóttir var rétt í þessu að sigra b úrslit í tölti 17 ára og yngri en hún var á Lyftingu frá Kjarnholtum I. Þær hlutu 6,11 í einkunn.
Í sjöunda sæti var Borghildur Gunnarsdóttir á Gáru frá Snjallsteinshöfða 1 með 5,78 í einkunn og í áttunda sæti var Eva Dögg Pálsdóttir á Hroka frá Grafarkoti með 5,67 í einkunn.
B Úrslit – tölti17 ára og yngri
- 6. Guðný Margrét Siguroddsdóttir / Lyfting frá Kjarnholtum I 6,11
- 7. Borghildur Gunnarsdóttir / Gára frá Snjallsteinshöfða 1 5,78
- 8. Eva Dögg Pálsdóttir / Hroki frá Grafarkoti 5,67
- 9.-10. Karítas Aradóttir / Gyðja frá Miklagarði 5,50
- 9.-10. Þorgeir Ólafsson / Frigg frá Leirulæk 5,50