Gullmótið að hefjast á ný
Gullmótið er að hefjast á ný og verður nú á brekkuvellinum. Vallaraðstæður líta vel út og hafa Fáksmenn lagt mikið á sig að laga brekkuvöllinn til og er aðstæða hér mjög góð.
Unnið hefur verið síðan í gær í að laga Hvammsvöllinn og líkur eru á því að hann verði notaður á morgun.
Eins og í gær ríða ungmenni á vaðið í fimmgangi og þar næst opinn flokkur í fimmgangi.
Dagskrá dagsins er eftirfarandi:
11:30 Fimmgangur – ungmenni, opinn flokkur
13:35 Fjórgangur – ungmenni, opinn flokkur
15:30 Hlé
15:45 Slaktaumatölt – ungmenni, opinn flokkur
16:35 Gæðingaskeið – ungmenni, opinn flokkur
17:15 Tölt – ungmenni, opinn flokkur
19:00 Kvöldmatarhlé
19:45 100 m skeið (gullmót og úrtaka)
250 m og 150 m skeið (gullmót og úrtaka)