Gullmótið nálgast
„Gullmótið 2013 verður haldið dagana 11.-15. júní á félagssvæði Fáks í Víðidal.
Á mótinu verður úrtaka fyrir heimsmeistaramótið í hestaíþróttum.
Þann 11. júní fer fram fyrri umferð og allar skeiðgreinar.
Gullmótið hefst 13. júní og seinni umferð úrtöku.
Keppt verður í fjórum Flokkum:
unglingar, ungmenni, opinn flokkur og 2. flokkur.
Keppnisgreinar eru eftirfarandi
Tölt, t1, T2, 4-gangur V1, 5-gangur F1, gæðingaskeið pp1, 100 m p2, 150 m p3 og 250 m p1.
2. flokkur: tölt T7 og fjórgangur V5.
Skráning hefst 28. maí:
skráning hefst 28. maí inn á Sportfengur.com og lýkur 4. júní.
Velja þarf úrtöku fyrir Hm eða Gullmótið.
Lágmarkseinkunn í opnum flokki er 6,0. lágmarkseinkunn í unglinga- og ungmennflokki er 5,5. ekkert lágmark í 2. flokki.
Skráningargjald: Gullmótið kr. 5.000,- og úrtaka fyrir Hm kr. 12.000,-
Nánari upplýsingar í síma 893 3559, 898 9354 og 897 5580,“ segir í tilkynningu frá aðstandendum
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH