Gústaf Ásgeir efstur í fjórgangskeppni unglingaflokks
Forkeppni í fjórgangskeppni unglinga fór fram á Íslandsmóti yngri flokka í dag. Hæstu einkunn, 7,23, hlaut Gústaf Ásgeir Hinriksson þegar hann sat hinn hágenga Nask frá Búlandi. Gústaf Ásgeir fékk einnig næsthæstu einkunn forkeppninnar á Myllu frá Árbakka. Valdís Björk Guðmundsdóttir er í þriðja sæti á Hrefnu frá Dallandi, en þær hlutu einkunnina 6,90.
B-úrslit í fjórgangskeppni unglinga fer fram á laugardag kl. 13.30 og A-úrslit á sunnudag kl. 11.30
Úrslit forkeppninnar urðu eftirfarandi:
1 Gústaf Ásgeir Hinriksson / Naskur frá Búlandi 7,23
2 Gústaf Ásgeir Hinriksson / Mylla frá Árbakka 6,97
3 Valdís Björk Guðmundsdóttir / Hrefna frá Dallandi 6,90
4-5 Jóhanna Margrét Snorradóttir / Bárður frá Skíðbakka III 6,77
4-5 Dagmar Öder Einarsdóttir / Glódís frá Halakoti 6,77
6 Birgitta Bjarnadóttir / Blika frá Hjallanesi 1 6,73
7-8 Svandís Lilja Stefánsdóttir / Brjánn frá Eystra-Súlunesi I 6,63
7-8 Róbert Bergmann / Brynja frá Bakkakoti 6,63
9 Anna Kristín Friðriksdóttir / Glaður frá Grund 6,60
10 Gabríel Óli Ólafsson / Vikur frá Bakka 6,57
11-14 Þórunn Þöll Einarsdóttir / Mozart frá Álfhólum 6,53
11-14 Konráð Valur Sveinsson / Hávarður frá Búðarhóli 6,53
11-14 Jóna Guðbjörg Guðmundsdóttir / Smyrill frá Hellu 6,53
11-14 Guðmunda Ellen Sigurðardóttir / Alvar frá Nýjabæ 6,53
15 Nína María Hauksdóttir / Bjarkar frá Blesastöðum 1A 6,47
16-17 Brynja Kristinsdóttir / Tryggvi Geir frá Steinnesi 6,40
16-17 Guðný Margrét Siguroddsdóttir / Lyfting frá Kjarnholtum I 6,40
18 Vera Roth / Kóngur frá Forsæti 6,37
19 Steinunn Arinbjarnardótti / Korkur frá Þúfum 6,30
20-23 Hulda Kolbeinsdóttir / Nemi frá Grafarkoti 6,23
20-23 Alexander Freyr Þórisson / Astró frá Heiðarbrún 6,23
20-23 Konráð Axel Gylfason / Smellur frá Leysingjastöðum 6,23
20-23 Konráð Axel Gylfason / Mósart frá Leysingjastöðum II 6,23
24-26 Birna Ósk Ólafsdóttir / Kolbeinn frá Sauðárkróki 6,20
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH